Regnbogavottun

Fossvogsskóli hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar sem hinseginvænn vinnustaður. Markmiðið með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks. Vottunin er hluti af því að framfylgja mannréttindastefnu borgarinnar.
Allar starfsstöðvar Reykjavíkurborgar geta óskað eftir að fá Regnbogavottun.
Hér má sjá nánari upplýsingar um regnbogavottun Reykjavíkurborgar.