Skip to content

Smásögukeppni FEKÍ 2018

Allir nemendur í 5. 6. og 7. bekk tóku þátt í Smásögukeppni FEKÍ 2018 ( Félag enskukennara á Íslandi).

Þema keppninnar í ár var „Danger“.

Sögurnar voru skemmtilegar og fjölbreyttar svo það var úr vöndu að ráða hjá okkur kennurunum að velja úr, þar sem við máttum bara  senda inn þrjár sögur frá skólanum.

Okkur til óvæntrar ánægju  unnu tveir nemendur skólans til verðlauna. Verðlaunaafhending mun fara fram með vorinu.

Karlotta Ómarsdóttir 7. bekk var í 3. sæti fyrir 6. – 7. bekk.

Helena Lapas fékk viðurkenningu fyrir 1. – 5. bekk.

Innilegar hamingjuóskir.

Bestu kveðjur,

Magnea og Ditte